8. fundur
atvinnuveganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 23. október 2023 kl. 15:00


Mætt:

Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) formaður, kl. 15:00
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 15:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:00
Berglind Harpa Svavarsdóttir (BHS), kl. 15:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 15:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 15:00
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 15:00
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 15:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 15:00
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 15:00

Ásmundur Friðriksson vék af fundi 16:20.

Nefndarritarar:
Sigrún Rósa Björnsdóttir
Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:00
Fundargerð 6. og 7. fundar var samþykkt.

2) 51. mál - endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir Kl. 15:05
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Tillaga um að Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir verði framsögumaður málsins var
samþykkt.

3) Kynning á Lagareldi Kl. 15:05
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Arnald Jón Gunnarsson, Hallveigu Ólafsdóttur, Kára Gautason, Kolbein Árnason og Kristján Frey Helgason frá matvælaráðuneyti.

4) Önnur mál Kl. 16:50
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 17:00